top of page

EMMA SÓL

EMMA SÓL samanstendur af Emiliu og Sólveigu, en við erum vinkonur til 14 ára sem erum að fara að byggja okkur parhús saman. Við ætlum að ræða  allt sem tengist framkvæmdunum, innanhúshönnun og smá krydd með, vonandi hafið þið gaman af, getið tekið lærdóm af okkar mistökum og sigrum eða einfaldlega bara drepið tímann.
 

Emilia starfar sem forstöðukona á sambýli, er með master í mannauðsstjórnun, félagsráðgjafi, snyrtifræðingur, kærastan hans Róberts og saman eiga þau fjögur börn. Emilia er alltaf jákvæð, mikil pollíanna og hefur óbilandi trú, hún er með mikla tilfinninga- og félagsgreind, góð í samskiptum og mikill fagurkeri. Emilia mun rífa hópinn upp þegar illa gengur, passa upp á tilfinningar allra í hópnum og vera límið sem heldur okkur saman.

​

Sólveig er sjálfstæður óháður stjórnunar- og fjármálaráðgjafi hjá Sólveig ehf, er með MBA, iðnaðarverkfræðingur, eiginkona Karls og saman eiga þau þrjú börn. Sólveig er fjármálagúrúinn í hópnum, ólíklegust til að blogga en á sama tíma hefur hún mikinn áhuga á innanhúshönnun og er mikill fagurkeri. Sólveig heldur hópnum á áætlun bæði tíma og kostnaðar, ásamt því að semja um verð og koma öllum leyfum í gegnum pólítískt umhverfi bæjarins.

​

​

Hafa samband

Success! Message received.

bottom of page